dagskrá næsta fundar.
Herra forseti. Það er ekki sama hvernig stjórnvöld fara með mikinn meiri hluta. Þessi stjórnvöld hafa mikinn meiri hluta og ættu að umgangast það mikla meirihlutavald með auðmýkt, en það er öðru nær í þessu tilfelli og svo mörgum öðrum þar sem er farið fram með hrottaskap og sagt „ég get, ég má“. Þannig er hugsunargangurinn, því miður. Það á kannski einhvern tímann eftir að koma í bakið á mönnum. Menn eru á algjörum villigötum með að fara að troða þessu umdeilda máli á dagskrá hér og nú með sniðgöngu við allt faglegt ferli. Og treysta menn ekki verkefnisstjórn til að vinna þessa vinnu, hæstv. umhverfisráðherra? Það er með ólíkindum hvernig menn umgangast valdið og telja að hægt sé að gera þetta án þess að rísi upp andmæli í þjóðfélaginu. Auðvitað gerist það. (Gripið fram í.) Við eigum að sýna umhverfinu þá virðingu að vera málsvarar þess en ekki (Forseti hringir.) þjösnast svona gegn öllum faglegum ferlum. Þess vegna eigum við að taka þetta mál (Forseti hringir.) af dagskrá. Ég segi já.