um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Að Framsóknarflokkurinn og umhverfisráðherra hans ætli sér að eyðileggja rammaáætlun sem tæki í umhverfismálum gefur auðvitað tilefni til að kalla eftir því að Framsóknarflokkurinn skili græna litnum. Það er sannarlega að sigla undir fölsku flaggi að hafa hann í forgrunni fyrir því sem hér er gert í dag. Það verður ekki komið í veg fyrir að þetta ólukkans mál verði á dagskránni í dag, eftir að nú hafa atkvæði gengið, og líklegt að umræðan verið fram eftir degi og fram á kvöldið. Ég hvet hæstv. forseta til að beita sér fyrir því að fundur dagsins á morgun hefjist á þarfamálum sem varða kjör fólksins í landinu og þá erfiðu stöðu sem uppi er á vinnumarkaði og hluti sem geta leitt til þess að meiri sátt verði í samfélaginu og samhent forusta á stjórnmálavettvangi í stað þess að dekra við pólitísk hryðjuverk í umhverfismálum, eins og hér er verið að gera.