144. löggjafarþing — 105. fundur,  12. maí 2015.

um fundarstjórn.

[14:43]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Mig langar að bregðast við orðum hv. þm. Þórunnar Egilsdóttur. Ég hef sem hluti af minni hlutanum ekki verið að uppnefna neinn, ég hef ekki talað efnislega um málið í dagskrárlið um fundarstjórn forseta, heldur hef ég vakið athygli á því að við okkur blasa tvö risastór mál. Einungis eitt þeirra krefst athygli okkar hér og nú, það eru kjaradeilurnar. Þess í stað fáum við þetta mál inn á dagskrá okkar til að eyða allri orku okkar í vegna þess að þetta er eitt mesta deilumál í íslensku samfélagi. Það er gott og blessað, þá bara ræðum við það og tökum okkar tíma í það, en gerum það á öðrum tímapunkti, ekki á meðan við stöndum frammi fyrir kjaradeilum. Það er það sem heila málið snýst um. Þess vegna kem ég hér upp undir liðnum um fundarstjórn forseta til að vekja athygli á þessu.

Við þurfum tíma til að skoða stór, aðkallandi mál til hlítar. Við höfum ekki þann tíma ef við erum föst hér að tala um rammaáætlun. Þannig að skilaboðin til okkar eru þau að við skulum annaðhvort bara sætta okkur við hvað svo sem hv. þm. Jón Gunnarsson hyggst gera varðandi rammaáætlun eða sætta okkur við (Forseti hringir.) að tala ekki um kjaramál. Hvorugt er í lagi.