144. löggjafarþing — 105. fundur,  12. maí 2015.

um fundarstjórn.

[14:45]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Sigrún Magnúsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég lít svo á að forseti Alþingis starfi fyrir okkur öll. Ég lít svo á að hann úrskurði í málefnum sem snerta alla flokka sem sitja hér. Mér finnst það furðulegt ef þingflokksformaður Framsóknarflokksins má ekki koma hér upp og lýsa yfir stuðningi við störf forseta öðruvísi en snúið sé út úr því. Hún veit að ráðherrar Framsóknarflokksins geta varið sig sjálfir í umræðunni á eftir.