meðferð og sala eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum.
Virðulegur forseti. Það er síendurtekið og kemur upp aftur og aftur að óljóst er af hverju er verið að vísa ákveðnum málum í tilteknar nefndir. Mér finnst vanta algjörlega rökstuðning fyrir því af hverju þetta mál ætti að fara í fjárlaganefnd. Eini snertiflöturinn við fjárlaganefnd er að þetta varðar eignarhluti ríkisins og mögulega sölu á þessum eignarhlutum í fjármálafyrirtækjum, en það er ekki nýjungin í þessu frumvarpi. Þetta frumvarp fjallar ekkert um þann þátt þessara laga. Í efnahags– og viðskiptanefnd er fjallað um málefni bankanna, málefni fjármálakerfisins, og það er það sem við erum að ræða í þessu frumvarpi.
Ef það verður virkilega niðurstaðan að málið eigi að fara í fjárlaganefnd finnst mér sanngjarnt að fá einhvern efnislegan rökstuðning fyrir því og þá efnislegan rökstuðning fyrir því af hverju efnahags- og viðskiptanefnd fjallar um bankana að öðru leyti en ekki fjárlaganefnd.