144. löggjafarþing — 105. fundur,  12. maí 2015.

meðferð og sala eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum.

705. mál
[14:52]
Horfa

Svandís Svavarsdóttir (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Við erum í svolítið sérstakri stöðu hér. Þegar umræðan um þetta þingmál hófst varð ljóst að fulltrúar í efnahags- og viðskiptanefnd höfðu raðað sér á mælendaskrá til að taka þátt í umræðu um mál sem þeir töldu að yrði vísað til sín til umfjöllunar, þar á meðal hv. þm. Frosti Sigurjónsson sem lýsti því í umræðunni að hann hefði verið tilbúinn að taka við málinu og lýsir því hér í umræðu um atkvæðagreiðsluna að hann sé opinn fyrir því að taka við málinu eftir sem áður. Við erum í þeirri ágætu stöðu, virðulegur forseti, sem gerist því miður ekki nógu oft hér að við erum einfaldlega að hlusta eftir röksemdum með og á móti hvorri nefnd um sig.

Þegar Bankasýslan var sett á stofn var umfjöllun um hana í hv. efnahags- og viðskiptanefnd. Það er eðlilegt að hún fari til umsagnar í fjárlaganefnd en allt annað, þ.e. að hún fari beint til fjárlaganefndar, hefur ekki verið rökstutt með neinu móti. Ég held að það séu bara lausatök í þinginu ef þetta fer að verða eitthvað tilviljanakennt en ekki með tilvísun til þingskapa hverju sinni. (Gripið fram í.) Rökréttast er (Forseti hringir.) að málið fari til efnahags- og viðskiptanefndar.