áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegi forseti. Eftir því sem ég les þetta plagg oftar verð ég sannfærðari um að það heldur ekki vatni, svo það sé sagt hér alveg skýrt. Það heldur ekki vatni.
Virðulegur forseti. Með því að leggja það hér fram skapar virðulegur forseti verulega hættu á því að rammaáætlun sé ónýt, að hún sé komin í þá stöðu að hún verði ekki endurreist. Ég vil í fullri vinsemd biðja um að gert verði hlé á þessari umræðu svo við fáum ráðrúm til þess að vega og meta þennan texta hér og skoða það sem komið hefur frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu þar sem fólk hefur verið vinna við þessi mál árum og áratugum saman, þangað til rætt hefur verið við verkefnisstjórn rammaáætlunar o.s.frv., vegna þess að við erum með alvöru verkefni í höndunum. Það er ekki boðlegt að kalla það faglegt mat verkefnisstjórnar að flokka í biðflokk. (Forseti hringir.) Þar með eru allir 67 kostirnir úr 2. áfanga undir á hlaðborði Jóns Gunnarssonar. (Forseti hringir.) Það getur ekki gengið að hafa það þannig, virðulegi forseti. (Forseti hringir.) Því verður að gera hlé á þessum fundi og þessari umræðu.