144. löggjafarþing — 105. fundur,  12. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[15:48]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Það er eiginlega tvennt; annars vegar langar mig til þess að velta því upp að gert er ráð fyrir því að þingið fjalli alla jafna faglega um mál. Þar sem þingflokksformaður minn var ekki í húsi heldur bundinn á öðrum fundi í hádeginu og kom ekki hér í hús fyrr en rétt áður en þingfundur hófst hef ég ekki séð þetta plagg, sem einhverra hluta vegna var ekki hægt að dreifa, hvorki með rafrænum hætti né fyrr. Ég spyr hæstv. forseta: Hver er ástæðan fyrir því að þetta álit er kynnt með þessum hætti? Hver er ástæðan fyrir því að ekki var hægt að fá það afhent rafrænt eða afhent í gær? Lá það fyrst fyrir í morgun? Og ef svo er þykir mér mjög ámælisvert að það sé gert með svo skömmum fyrirvara.

Það er enginn þingflokksfundur í dag þannig að þingflokksformenn hafa ekki haft færi á að kynna þingmönnum sínum málið með formlegum hætti á tilteknum fyrir fram ákveðnum tíma. Mér finnast þetta því óvönduð vinnubrögð og þetta er ekki (Forseti hringir.) lýðræðislegt, virðulegi forseti. En ég mundi óska eftir því að fá svar við því: Hver er ástæðan fyrir því að þetta er kynnt með þessum hætti?