144. löggjafarþing — 105. fundur,  12. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[16:38]
Horfa

Frsm. meiri hluta atvinnuvn. (Jón Gunnarsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Nei, ég hef ekki neinar sérstakar áhyggjur af þessu. Ég verð að segja það. Mér finnst það með ólíkindum ef það er þannig að þingið hafi ekki rétt til þess að fjalla um þau mál sem til þess koma. Ef við förum aðeins yfir þann rökstuðning sem kemur fram í þessu þar sem nefnt er að verkefnisstjórn hafi ekki fjallað um þessa virkjunarkosti, þá er það bara ekki rétt. Það þarf ekki annað en að lesa greinargerð verkefnisstjórnar til ráðherra þar sem kemur fram að verkefnisstjórnin fór á staðinn, hún fjallaði um þessa kosti, hún fór yfir ákveðna þætti þar og hennar mat var að það þyrfti að gera það betur. Mat nefndarinnar er að þau atriði sem út af standa muni verða tekin fyrir(Forseti hringir.) í umhverfismati framkvæmda,(Forseti hringir.) umhverfismati þessara virkjana þegar það þarf að fara fram.