um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Ég heyri hvað forseti segir og geri ráð fyrir að hér verði gert hlé á fundinum meðan formenn þingflokka funda með forseta um þá óheppilegu stöðu sem komin er upp í þinghaldinu og umbúnað þessa máls. Ég held að það færi um leið vel á því að umræðunni yrði þegar frestað. Ég sé að það er á mörkunum, ef þessi fundur á að hefjast núna klukkan hálfsjö, að framsögumaður 1. minni hluta, hv. þm. Kristján L. Möller, nái að mæla fyrir áliti sínu. Hann þarf hálftíma til þess og jafnvel þótt honum tækist það þá yrði að slá andsvörum við framsöguræðu hans á frest, líklega fram yfir kvöldverðarhlé. Ég hefði fyrir fram haldið að það færi ekki vel á því að haga umræðunni með þeim hætti og þess vegna er best að reyna að útkljá þetta mál fyrst á fundi formanna þingflokka með forseta áður en umræðunni er fram haldið.