144. löggjafarþing — 105. fundur,  12. maí 2015.

um fundarstjórn.

[19:36]
Horfa

Katrín Jakobsdóttir (Vg):

Herra forseti. Sálarlíf hv. þingmanna í stjórnarmeirihlutanum er auðvitað orðið talsvert rannsóknarefni og vonandi að einhver fræðimaður sé að fylgjast með af því að það er efni í margar góðar ritgerðir og greinar. Það sem ég hef áhyggjur af er sú staðreynd að Alþingi Íslendinga berst við að reyna að byggja upp traust landsmanna á störfum sínum og þá er ekki gott að við séum að deila um formsatriði, hvort mál séu hreinlega tæk til umræðu á þinginu, að sú umræða fari fram með þessum hætti og ekki sé efnt til samtals áður en málin eru tekin á dagskrá til þess að ræða þau. Síðan í framhaldinu þegar efnisleg umræða er rétt nýhafin kemur á daginn að málið nýtur ekki einu sinni stuðnings meiri hluta þingsins, og er ekki í fyrsta sinn þar sem ráðherrar málaflokksins eru ekki í takt við meiri hluta nefnda.

Herra forseti. Allt safnast þetta saman til þess að rýra (Forseti hringir.) traust manna á störfum okkar hér. Það finnst mér að ætti að vera áhyggjuefni fyrir okkur öll hérna inni.