144. löggjafarþing — 105. fundur,  12. maí 2015.

um fundarstjórn.

[19:40]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg):

Herra forseti. Ég held að allir hafi orðið mjög undrandi að horfa á hæstv. umhverfisráðherra tala í fréttunum í kvöld. Einhvern tímann var nefnd sem var kölluð tvíhöfðanefnd starfandi á vegum ríkisins. Mér finnst hæstv. umhverfisráðherra haga sér eins og einhver tvíhöfði. Í öðru orðinu talar hún um að standa með náttúrunni og verja hana, en svo hleypir hún svona vitleysu í gegn hjá hv. þm. Jóni Gunnarssyni. Maður skilur ekki þegar ráðherrar haga sér með þeim hætti að tala svona í báðar áttir og þurfa ekki að standa við orð sín eða meiningu. En þetta er kannski háttur framsóknarmanna að vera opnir í alla enda og standa aldrei við sannfæringu sína? Er einhver þingmaður Framsóknarflokksins sem lætur bjóða sér svona þegar umhverfisráðherra er búin að tala þannig að þessir kostir eigi að fara í gegnum verkefnisstjórn?