um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Sá fundur sem haldinn var hér áðan hefur augljóslega ekki borið mikinn árangur. Ég held að það sé orðið alveg morgunljóst. Þegar við horfðum á og hlustuðum á hæstv. umhverfisráðherra í kvöldfréttum varð mér eiginlega allri lokið. Mér finnst þessi framkoma eiginlega óboðleg og að sjálfsögðu, ef á að halda þessari umræðu áfram, á hún að sitja hér í salnum. Það væri áhugavert að vita hvort þetta sé, eins og ég segi, enn eitt málið þar sem ríkisstjórnarflokkarnir eru klofnir í herðar niður, það væri áhugavert. Ég sé að Páll Jóhann Pálsson er búinn að biðja um orðið og væntanlega getur hann gert grein fyrir því. Það hlýtur að hafa verið rætt í Framsóknarflokknum hvernig taka á á máli umhverfisráðherra og hv. þingmaður hlýtur að geta gert okkur grein fyrir því hversu mikil eining er og hvort hann telur vera meiri hluta í þinginu fyrir þessu.
Að því sögðu liggur það auðvitað bara fyrir, og er það rakið í DV í dag og þarf það svo sem ekki til til að segja okkur að þessi ríkisstjórn á bara að pakka saman. Þjóðin er búin að segja (Forseti hringir.) henni það að hún eigi að pakka saman. Hér er ekki verið að ræða málin sem skipta þjóðina mestu (Forseti hringir.) heldur gæluverkefni hv. þm. Jóns Gunnarssonar sem nýtur þess að vera í sviðsljósinu.