um fundarstjórn.
Hæstv. forseti. Það er fróðlegt að fylgjast með eins og komið hefur fram í umræðunni, í fyrsta lagi að hlusta á fréttir og fá þar afstöðu hæstv. umhverfisráðherra, heyra síðan hér í hv. þm. Jóni Gunnarssyni, sem er formaður atvinnuveganefndar, og hv. nefndarmanni Páli Jóhanni Pálssyni. Í rauninni eru þeir báðir búnir að segja hér að þeir séu að flytja nýja tillögu. Þeir eru að flytja nýja tillögu, enda ef maður les hana þá er verið að semja nýja tillögu. Það á að gera þannig að þegar búið er að fara í allt umsagnarferlið um fyrri tillöguna þá kemur þessi, hún fer í eina umræðu í þinginu, eina umræðu um viðkvæmustu málin sem við ræðum í íslensku samfélagi. Ef þetta er ekki frekjustjórnmál af verstu gerð og yfirgangur þá veit ég ekki hvað er átt við þegar menn tala um það.
Ég skora á viðkomandi aðila að halda sig við upprunalegu tillöguna, láta hana fá eðlilega umfjöllun — hún væri raunar löngu komin í gegn ef menn hefðu bara látið sér það duga — og síðan er hægt að flytja sjálfstæðar tillögur í framhaldinu þegar verkefnisstjórnin er búin að skila sinni (Forseti hringir.) niðurstöðu.