144. löggjafarþing — 105. fundur,  12. maí 2015.

um fundarstjórn.

[19:56]
Horfa

Steingrímur J. Sigfússon (Vg):

Herra forseti. Hv. þm. Jón Gunnarsson virðist líta svo á að ekki sé hann aðeins hafinn yfir lög heldur skipti afstaða ráðherra málaflokksins, fagráðherrans í ríkisstjórn sem hv. þingmaður væntanlega styður, engu máli heldur. Það er eins og hv. þingmaður haldi að atvinnuveganefnd þingsins starfi á einhverju lagalegu og pólitísku einskismannslandi þar sem hún ráði ein. (Gripið fram í.) Þetta gengur auðvitað ekki svona. Það verður að kenna hv. þingmanni mannasiði, hann kann ekki að skammast sín, herra forseti. Þannig hefði það verið orðað í minni heimasveit. Og mér er lítt skemmt. Hann talar svo um að menn séu með málflutning út af engu. Það er ekki bara út af engu sem ég er algerlega efnislega andvígur tillögunni og svo náttúrlega málatilbúnaðinum. Það er til dæmis í húfi stærsti villti laxastofn í Norður-Atlantshafinu. Er það ekki neitt? Ég held að hv. þm. Jón Gunnarsson ætti að fara að átta sig á því að hann er ekki (Forseti hringir.) þar staddur á bæ að hann geti með ofbeldi ráðið öllum hlutum. Það verður ekki þannig.