áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka 7. þm. Norðaust. fyrir prýðilega og fræðandi ræðu. Sjálfur hef ég ekki myndað mér endanlega skoðun á því hvað mer finnst um hverja virkjun, fyrir mér snýst þetta aðallega um formið og þá sátt sem við reynum að ná í þessum málaflokki og væri vissulega svo dýrmæt.
Ég er að velta fyrir mér Hagavatnsvirkjun. Hún stingur í augun, sérstaklega vegna þess að ég sé ekki að hún hafi fengið neitt sem virðulegur forseti kallaði faglegt mat í úrskurði sínum nema faglegt mat þýði einfaldlega að á hana hafi verið minnst með einhverjum hætti. Ég velti fyrir mér hvort hv. þingmaður geti eitthvað frætt mig þar sem hann er í umræddri hv. nefnd og kemur hér að minnihlutaáliti. Getur hann eitthvað frætt mig um það hvaða réttlætingar eru fyrir því að Hagavatn sé með á þessum lista með hliðsjón af því að það er hvergi að finna að sú virkjun hafi nokkurn tíma verið í nýtingarflokki? (Forseti hringir.) Eftir því sem ég fæ best séð hefur aldrei staðið neitt annað til en að hafa hana í bið.