áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Hæstv. forseti. Hv. þm. Róbert Marshall las upp úr lagatextanum um samráð við almenning, umsagnarfrest og allt það og ég get haldið áfram með það sem ég var að segja áðan, sem fór ekki með breytingartillögu meiri hluta nefndarinnar, að til dæmis er ég nokkuð viss um að álit Sambands íslenskra sveitarfélaga, sem er mjög afdráttarlaust, hlýtur að vera byggt á þessu ferli. Það hlýtur meðal annars að vera byggt á því að til þess komu engin gögn til að vega og meta ásamt vafalaust miklu fleiri aðilum.
Um það hvort meiri hlutinn skilji ekki lögin eða vilji ekki skilja lögin ætla ég að leyfa mér að skila auðu í að svara vegna þess að ég botna hvorki upp né niður í þessu. Ég var búinn að vara við þessu ferli, ég var búinn að vara við því að hér væri rofin sátt og illdeilur mundu magnast upp. Ég óttast málaferli og get ekki ímyndað mér annað en að þeir sem eru á móti því hvernig þetta er lagt upp hafi svo mikið í farteskinu sem lögskýringargögn, m.a. frá ráðuneytunum tveimur. (Forseti hringir.) [Lófatak í þingsal.] Var ég að gera eitthvað af mér hér í þingsal? Hvað var ég að segja?