144. löggjafarþing — 105. fundur,  12. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[21:09]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Ég ætla nú ekki að gera ræðu síðasta hv. þingmanns að umfjöllunarefni hér þó að þar hafi komið fram ærin efni sem ástæða sé til að taka á. Ég vil hins vegar taka upp þráðinn frá því í umræðum um fundarstjórn fyrr á fundinum. Nú er hæstv. umhverfisráðherra komin til fundarins og ég hygg að það sé ríkur vilji flestra ef ekki allra þeirra sem á mælendaskránni eru að reyna að skýra aðeins myndina af umræðunni og stöðu málsins í þinginu í framhaldi af yfirlýsingum ráðherrans í fréttatíma Stöðvar 2 í kvöld og greiða henni leið á mælendaskrá. Ég mælist til þess við forseta að ráðherranum verði gefið færi á því að koma hingað í ræðustól og skýra yfirlýsingar sínar og stöðu málsins, og ef ekki henni þá formanni þingflokks Framsóknarflokksins því að það verður að teljast býsna óvenjulegt ef hæstv. umhverfisráðherra hefur ekki gefið sínar yfirlýsingar út fyrir hönd þingflokks Framsóknarflokksins, sem vekur spurningar um hvort það sé kominn einhver nýr umhverfisráðherra (Forseti hringir.) eða hvernig þessu öllu víkur við.