áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegi forseti. Fyrst hæstv. umhverfisráðherra er kominn í sal ítreka ég þá bón mína að hann taki til máls og taki þátt í þessum umræðum með því að nýta hvað sem þingsköp bjóða upp á til að komast á mælendaskrá. Aftur ítreka ég að ég er allur af vilja gerður til að gera hvað svo sem ég get gert til að koma hæstv. umhverfisráðherra að. Ég er algjörlega sannfærður um að margir, ef ekki allir, hv. þingmenn á mælendaskrá séu reiðubúnir til þess og ég óska eftir því að hæstv. ráðherra komi í andsvör eða eitthvað því um líkt til að koma að sjónarmiðum sínum. Þau eru hér mikið til umræðu. Hér hefur verið góð, efnisleg umræða, tvær ræður fluttar hingað til sem hafa verið algjörlega efnislegar og að mínu mati mjög áhugaverðar og fræðandi og þess vegna væri mjög góður bragur að því, eins og sagt er hér á bæ, ef hæstv. umhverfisráðherra sæi sér fært að stíga í pontu, í gegnum hvaða tæki sem þingsköp bjóða upp á, og taka þátt í þessu samtali vegna þess að þetta er stórt mál.