áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Herra forseti. Látum vera þó að hv. þingmenn stjórnarliðsins sem hér stóðu á öndinni í allan dag og kölluðu eftir málefnalegri umræðu séu of værukærir til að taka þátt í umræðunni. Hitt gengur ekki að hæstv. umhverfis- og auðlindaráðherra þrumi þegjandi í sæti sínu, eftir atvikum utan salar, í kjölfar þess að hún hefur gefið það alveg skýrt til kynna að hún styður ekki breytingartillöguna við þessa þingsályktunartillögu. Það verður að koma fram í upphafi þessarar umræðu hver afstaða hæstv. umhverfis- og auðlindaráðherra er til þeirrar tillögu sem liggur hér fyrir. Það gengur ekki að umræðunni vindi fram án þess að það komi í ljós.
Hæstv. ráðherra hefur svarið eið að stjórnarskránni þar sem hún hefur lýst því yfir að hún muni fara eftir sannfæringu sinni. Hún hefur sagt þjóðinni og þinginu hver sannfæringin er. Sannfæringin er sú, að hennar eigin sögn í fréttum Stöðvar 2 áðan, að hún vildi helst að farið yrði að hinni upphaflegu tillögu. (Forseti hringir.) Ég vil spyrja hæstv. ráðherra til að greiða fyrir þingstörfum: Hver er afstaða hennar til tillögunnar sem hér liggur fyrir?