áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Forseti vekur athygli á því að enn hefur ekki verið mælt fyrir öllum nefndarálitum. Við venjulegar aðstæður mundi það hafa forgang að framsögumenn nefndarálita, meiri hluta og minni hluta, héldu sínar framsöguræður áður en gerðar yrðu breytingar á mælendaskrá þannig að hæstv. ráðherra gæti tekið þátt í umræðum. Hæstv. ráðherra getur að sjálfsögðu veitt andsvör eða notað önnur úrræði sem þingsköpin leyfa til að láta álit sitt í ljós eða svara spurningum. En þetta telur forseti vera hinn eðlilega framgang mála, að fyrst sé mælt fyrir nefndarálitum.