áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir að hæstv. umhverfisráðherra hafi sett sig á mælendaskrá og hyggist taka þátt í umræðunni. Ég tek líka undir með hv. þm. Kristjáni Möller hér áðan og vil ljúka lofsorði á hæstv. ráðherra fyrir að standa vörð um réttan framgang mála hvað varðar meðferð nýtingarkosta, rétt eins og hæstv. ráðherra Sigurður Ingi Jóhannsson hefur gert.
Umhugsunarefnið er hins vegar að hv. þm. Jón Gunnarsson segir í heyranda hljóði í þingsal að hann hafi umboð þeirra sem máli skipta til að reka málið með þeim hætti sem hann er að gera núna fram hjá vilja hæstv. umhverfisráðherra og fyrrverandi umhverfisráðherra, Sigurðar Inga. Maður hlýtur að spyrja sig þá hvort ekki sé eðlilegt að forustumenn stjórnarflokkanna, þeir sem raunverulega skipta máli, komi hingað og ræði þetta mál við okkur sem og að fulltrúar Framsóknarflokksins komi inn í umræðuna og skýri þetta nákvæmlega. Hverjir eru þessir menn sem máli skipta sem vega þyngra en ráðherrar málaflokksins?