144. löggjafarþing — 105. fundur,  12. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[21:40]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta atvinnuvn. (Lilja Rafney Magnúsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Það má ýmislegt segja um þetta stóra mál og ég viðurkenni að ég er mjög áhugasöm og bíð spennt eftir því að heyra hvað hæstv. ráðherra hefur til málanna að leggja þegar hún kemur í ræðu á eftir mér. En ég ætla að byrja á því að mæla fyrir nefndaráliti 2. minni hluta atvinnuveganefndar, nefndaráliti með frávísunartillögu um tillögu til þingsályktunar um breytingu á þingsályktun um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, nr. 13/141, þskj. 1248.

Markmið laga um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 48/2011, er meðal annars að tryggja að nýting landsvæða þar sem er að finna virkjunarkosti byggist á langtímasjónarmiðum og heildstæðu hagsmunamati þar sem tekið er tillit til verndargildis náttúru og menningarsögulegra minja, hagkvæmni og arðsemi ólíkra nýtingarkosta.

Annar minni hluti telur mikilvægt að farið sé að ákvæðum laganna svo tryggt sé að undirbúningur að verndar- og orkunýtingaráætlun sé faglegur og gegnsær og að tryggður sé réttur almennings til að koma sjónarmiðum sínum að eins og lögin gera ráð fyrir. Í þeim er mælt fyrir um ákveðið ferli sem 2. minni hluti ítrekar að brýnt sé að fylgja til að tryggja samfellu í því hvernig ákvarðanir eru teknar um tilteknar virkjunarframkvæmdir.

Í einróma nefndaráliti iðnaðarnefndar þegar frumvarp til laga um verndar- og nýtingaráætlun vegna fallvatna og háhitasvæða var til umfjöllunar á 139. löggjafarþingi var vísað til þess að markmið laganna væri meðal annars að stuðla að vandaðri og markvissri stefnumörkun og sátt um hvaða svæði væri hugsanlega hægt að nýta til orkuvinnslu og hvaða svæði ætti að vernda gagnvart slíkum framkvæmdum með sjálfbæra þróun að leiðarljósi.

Ljóst er að málsmeðferð meiri hluta atvinnuveganefndar er eins langt frá því að stuðla að sátt um hvaða svæði skuli nýta og vernda og hugsast getur. Meiri hlutinn hefur nú lagt fram breytingartillögu sem felur í sér að fjórir nýir virkjunarkostir færist í nýtingarflokk, þar af einn sem ekki hefur undirgengist faglega skoðun verkefnisstjórnar.

Í fréttum sjónvarps að kvöldi 22. janúar síðastliðins kom fram hjá Sigrúnu Magnúsdóttur, umhverfis- og auðlindaráðherra, að hin eðlilega málsmeðferð væri að verkefnisstjórn um rammaáætlun fengi virkjunarkostina til umfjöllunar og að mikilvægt væri að hafa marga kosti undir því að þá væri betra að flokka þá í nýtingarflokk, biðflokk eða verndarflokk.

Annar minni hluti leggur til að málinu verði vísað til umhverfis- og auðlindaráðherra sem feli verkefnisstjórn samkvæmt 8. gr. laga um verndar- og orkunýtingaráætlun að fjalla um þann kost sem tillagan felur í sér og flokki hann ásamt þeim virkjunarkostum sem Orkustofnun hefur sent verkefnisstjórn þriðja áfanga rammaáætlunar, samanber tilkynningu þar að lútandi frá 20. janúar 2015. Með því er fyrirmælum laganna fylgt nákvæmlega, en í þeim er ekki gert ráð fyrir að kostir séu teknir út og settir í sérstaka flýtimeðferð, eins og gert var með Hvammsvirkjun sem þingsályktunartillagan gerir ráð fyrir að færa einhliða í nýtingarflokk.

Annar minni hluti bendir að lokum á að fram kom hjá mörgum umsagnaraðilum og gestum nefndarinnar að yrði breytingartillaga meiri hlutans afgreidd væri ferli rammaáætlunar haft að engu. Einnig var lýst stuðningi við frávísunartillögu 2. minni hluta. 2. minni hluti telur brýnt að unnið verði samkvæmt ferli laganna, að tryggt verði fjármagn til að skipa faghópa og að Umhverfisstofnun fái nægt fjármagn til að undirbúa friðlýsingu svæða í verndarflokki.

Undir þetta nefndarálit með frávísunartillögu skrifa sú sem hér stendur, hv. þm. Lilja Rafney Magnúsdóttir og hv. þm. Björt Ólafsdóttir.

Svo mörg voru þau orð og má margt annað segja um allt þetta ferli og hvernig núverandi ríkisstjórnarflokkar kjósa að setja öll mál upp í loft og öll mál í ágreining og kjósa alltaf ófrið þó að friður sé í boði. Það er svolítið sérkennilegt að gera það. Ég hef sagt það að þeir sem hafa mikinn meiri hluta eigi að umgangast vald sitt af hógværð og auðmýkt því að enginn veit hvenær hann verður í einhverjum meiri hluta hvar sem er í samfélaginu. Menn verða að bera virðingu fyrir minni hluta hverju sinni því að það getur orðið þeirra hlutskipti innan tíðar. Það ætti Framsóknarflokkurinn að hugsa svolítið um miðað við skoðanakannanir undanfarnar vikur, það kemur kannski eitthvert annað hljóð í strokkinn síðar. Ég held að Sjálfstæðisflokkurinn ætti nú líka að íhuga að hann hefur ekki það mikla vald og þá sterku stöðu sem hann hafði einu sinni þar sem hann deildi og drottnaði á Íslandi og voru margir þar undir hælnum.

Nú hefur atvinnuveganefnd kosið að ganga þvert á það faglega ferli sem við höfum samþykkt með rammaáætlun að virkjunarkostir færu í. Hún hefur tekið upp á sitt einsdæmi að bæta fjórum kostum við þann eina kost sem hæstv. ráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, lagði fram fyrir áramót. Hann var þá búinn að óska eftir því við verkefnisstjórn að fram færi eins konar flýtimeðferð á átta kostum. Verkefnisstjórn treysti sér ekki á þeim skamma tíma til að afgreiða nema einn kost eftir þessari pöntun ráðherra og það var Hvammsvirkjun.

Eins og fram kemur í nefndaráliti okkar er líka miklu erfiðara að vinna úr svo fáum kostum og greina þá og meta í forgangsröð, eins og fram kom hjá verkefnisstjórn þegar hún kom fyrir atvinnuveganefnd. Hún taldi réttast að vísa öllum þessum kostum aftur til verkefnisstjórnar þar sem fyrir liggur fjöldi kosta til úrvinnslu. Hugsunin var að þá væru allir þessir kostir teknir þar til meðferðar. Það er ekki eins og þeir séu neitt að hlaupa frá okkur. Talar verkefnisstjórn ekki um að skila af sér árið 2017? Höfum við ekki alveg næga orku hér í landi fyrir okkur fram að þeim tíma? Mér heyrðist á hv. þm. Jóni Gunnarssyni í kvöldfréttum að við stæðum frammi fyrir því að hafa enga orku í landinu, ekkert rafmagn. Ég hef nú ekki alveg orðið vör við að ástandið væri orðið svo slæmt, en vissulega er mikill þrýstingur af þessum stórfyrirtækjum, stórnotendum orku um að fá meiri orku til þess að fara í stærri og fleiri stóriðjuframkvæmdir. Það er mjög sérstakt að ríkisstjórnin geri ekki athugasemd þegar meiri hluti atvinnuveganefndar kemur til móts við eftirspurn og mikinn þrýsting frá þessum aðilum og hleypir mönnum með ákveðna kosti í flýtimeðferð, skemmri skírn, til þess að mæta þessum kröfum.

Orkuframleiðsla er mest á Suðurlandi. Eins og ég skil það eru um 80% þeirrar orku sem framleidd er í landinu framleidd þar. En hvað verður mikið eftir af þeirri orku til þess að nýta heima í héraði? Það eru eitthvað um 4%, held ég. Stærsti hluti þessarar orku fer í að knýja alls kyns stóriðju hér á landi, sem einhverjum þykir nú vera komið nóg af. Stóriðja í landinu tekur fimm sinnum meira rafmagn en heimilin í landinu. Það er mikið talað um að stóriðjan hafi bjargað okkur og að það sé svo frábært að hafa svona stóra notendur og að við njótum öll góðs af því í raforkuverði. Ég held að um það séu ansi deildar meiningar (Gripið fram í: Ekki um Bakka. …) og að gerðir hafi verið afspyrnulélegir samningar hérna á árunum áður, (KaJúl: … ekki málefnalegt …) sem hafa verið til langs tíma og fyrst núna er einhver möguleiki á að endurskoða þá.

Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis var kallað eftir faglegri vinnu, að við temdum okkur fagleg vinnubrögð, að vinnubrögðin væru gegnsæ og við færum eftir verkferlum. Ef þetta er ekki algjörlega á skjön við það sem fram kom í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis þá veit ég ekki hvað er það. Hér er auðvitað algjörlega verið að fara á skjön við það og það er ótrúlegt að okkur sé boðið upp á það af meiri hluta atvinnuveganefndar aðeins tæpum sex árum eftir hrun.

Svo hefur líka komið fram að núverandi ríkisstjórn leggur ekki neina fjármuni í að friðlýsa svæði. Það er algjörlega afgangsstærð. En haldið skal áfram að þjösnast með kosti fram hjá verkefnisstjórn og fram hjá faglegu ferli, en það á ekkert að gera á hinum kantinum til að reyna að mynda eitthvert jafnvægi í þessum málum. Ekki hefur verið lögð króna í friðlýsingar frá því að síðasta ríkisstjórn lagði fjármuni í það á fjárlögum fyrir árið 2013. Hvað veldur? Skilja menn ekki að við þurfum að ganga vel um náttúru landsins? 80% þeirra ferðamanna sem koma til Íslands koma vegna náttúru landsins. Og eins og fram hefur komið hjá mörgum sem gagnrýnt hafa ofbeldi atvinnuveganefndar í þessum málum þá verða menn að horfast í augu við að nú keppast tveir stórir aðilar um nýtingu, það eru ekki bara orkukaupendur heldur líka ferðaþjónustan, þ.e. hvernig landið er nýtt. Þá skiptir líka máli hvernig við gögnum um vatnsföll okkar. Það er ekki þörf á því að fara út í virkjunarframkvæmdir á þeim svæðum sem geta skilað okkur miklu meiri hagnaði með öðrum hætti.

Mér fannst mjög áhugavert sem ég heyrði, að ungt fólk sem býr við Þjórsá og í nágrenni Þjórsár segði að núverandi kynslóð væri að gleypa allt og ráðstafa náttúruauðlindum landsins með því til dæmis að ætla sér að virkja neðri hluta Þjórsár, og skildi næstu kynslóð eftir og væri búin að binda hendur hennar í þeim efnum. Sú kynslóð sem nú ræður ríkjum gæti gert ýmislegt annað sem hægt væri að hafa atvinnutekjur af og nýtt í sátt við sjálfbært umhverfi, í stað þess að virkja náttúruperlur okkar til að setja orkuna í fleiri stóriðjuver. Fá þeir aldrei nóg sem eru og hafa verið hlynntir stóriðjuframkvæmdum? Er aldrei komið nóg? Er hægt að bjóða okkur upp á að það sé þá aldrei hægt að draga línu í sandinn og segja að nú sé þetta bara komið gott, og horfa til annars konar atvinnuuppbyggingar?

Oft hefur manni heyrst að rökin fyrir því hjá hv. formanni atvinnuveganefndar séu ekki meiri en þau að nú þurfi að virkja meira til þess að hleypa rafmagni í einhverja stóriðju sem bíði hér og þar. En við eigum fullt af ónýttu afli í landinu, bæði í kostum sem eru í nýtingarflokki og líka þeim sem fyrir eru og fullnýtingu á þeim virkjunum sem fyrir eru í landinu. Það er margt annað kjöt á beini en stóriðja.

Það er líka umhugsunarvert hvernig arðurinn af stóriðjunni er fluttur með ýmsum leiðum út úr landinu til dótturfyrirtækja til þess að losna við að borga skatt til ríkisins Einhvers staðar verða menn nú að spyrna við fæti, það er hlutverk okkar sem viljum standa vörð um íslenska náttúru. Við viljum vissulega nýta náttúruna en með sem mest sjálfbærum hætti og ekki fara að vaða í alla virkjunarkosti sem mönnum dettur í hug og fram hjá þeirri sátt sem búið var að mynda með rammaáætlun þar sem menn kæmu sér saman um að setja í nýtingu eða vernd eða bið eftir faglega vinnu verkefnisstjórnar.

Það hefur líka komið fram hjá stofnunum eins og Umhverfisstofnun að það er ekki ásættanlegt að á fjögurra ára fresti fari allt í uppnám, að kostir sem komnir eru í verndarflokk hafi ekkert skjól þar. Þeir geti verið teknir úr vernd og settir í eitthvað annað. Er ekkert skjól að einhver kostur sé kominn í vernd? Það virðist ekki vera. Það virðist allt vera komið í uppnám. Það er ljótur leikur hjá alþingismönnum og þeim sem bera ábyrgð á því í ríkisstjórn að hleypa svona vitleysu í gang sem eyðileggur margra ára og áratuga vinnu við að reyna að ná sátt um vernd og nýtingu virkjunarkosta og náttúruperlna á Íslandi. Við erum ekki ein í heiminum. Það breytist margt á 50 árum, eins og við sáum sem sátum fund Landsvirkjunar. Það talar enginn fyrir því að virkja ekki neitt, en við verðum að gera það í einhverri sátt. Það verður að vera þannig að menn raði þá þessum kostum með sem bestum hætti og láti aðra kosti óhreyfða í stað þess að keyra málin áfram með valdi og handafli í nefndum þingsins til þess að koma ákveðnum kostum í flýtimeðferð.

Hvammsvirkjun var tillaga verkefnisstjórnar sem hún þurfti að vinna hratt með og úr mjög fáum kostum. Ráðherra lagði þann kost til. Það er vissulega lögformlegt ferli en vinnubrögðin eru samt mjög umdeilanleg. Hvammsvirkjun verður í raun tilraunaverkefni og prófsteinn á það hvort seiðafleytur virki. Komið hefur fram að seiðafleytur í Kólumbíufljóti hafa ekki virkað og er engin reynsla komin á seiðafleytur á Íslandi. Við erum að taka áhættu. Einnig hefur komið fram, eins og ég hef nefnt áður, að forstjóri Veiðimálastofnunar hefur sagt að þetta geti verið mikil áhætta, að stór hluti laxastofnsins við Urriðafoss og Holtavirkjun hverfi ef seiðafleyturnar skila ekki sínu hlutverki.

Þegar eitthvað er algjörlega á tilraunastigi hljóta menn að vera óttaslegnir gagnvart þeirri miklu áhættu þeir taka í þeim efnum. Viljum við vera sú kynslóð sem tekur þá miklu áhættu? Með virkjunum í neðri hluta Þjórsár, Hvamms-, Holta- og Urriðafossvirkjun er stofnum villts lax og silunga stefnt í hættu. Um er að ræða einn stærsta laxastofn landsins sem aðlagast hefur lífi í jökulvatni og ber útlit hans vott um slíka aðlögun. Svo segir í umsögn Landverndar.

Þar kemur einnig fram:

„Landsvirkjun hefur ekki gert trúverðuga grein fyrir því að mótvægisaðgerðir dugi til að koma í veg fyrir hrun fiskstofna. Sérfræðingar sem hafa kynnt sér málið eru á einu máli um að virkjanir hafi mjög neikvæð áhrif á lífríki árinnar og hlunnindum landeigenda er stefnt í voða. Þá hafa samfélagsleg áhrif virkjananna ekki verið metin.“

Þetta er nú eitthvað sem við ættum að staldra við.

Svo er eitt sem einnig hefur komið fram hjá verkefnisstjórn, það varðar samfélagsáhrifin, að þau séu ekki tekin með inn í dæmið. Það er nokkuð sem ég held að við þurfum virkilega að koma inn í vinnu verkefnisstjórnar, að taka meira tillit til samfélagslegra áhrifa.

Ég ætla að vitna hérna aðeins í það sem fram kemur um þau mál í sjálfri þingsályktunartillögunni:

„Eins og fram hefur komið var núverandi verkefnisstjórn í upphafi falið að meta virkjunarkostina út frá þeim þáttum sem urðu þess valdandi að virkjunarkostirnir voru færðir úr orkunýtingarflokki í biðflokk. Álitaefnið vegna virkjunarkostanna í Þjórsá var fyrst og fremst áhrif á laxastofna og því voru áhrif á samfélag ekki skoðuð sérstaklega. Verkefnisstjórnin bendir á að við mat á umhverfisáhrifum framkvæmda er eðlilegt að lagt sé nánara mat á áhrif framkvæmdanna á umhverfi og samfélag en unnt er að gera við gerð rammaáætlunar.“

Þarna undirstrikar verkefnisstjórn þetta atriði og kemur fram í máli þeirra sem búa á þessu svæði, og náttúruverndarsamtökum á Suðurlandi, að taka verði þá breytu inn í myndina. Því miður hefur allt samfélagið þarna staðið í miklum deilum út af þessum málum og heyrir maður ýmsar miður fallegar sögur í þeim efnum. Það er auðvitað ekki gott þegar upp kemur svona stór ágreiningur í litlum samfélögum sem slítur jafnvel vinabönd sem verið hafa til langs tíma.

Einnig hefur komið fram, til dæmis hjá Skipulagsstofnun, að það er enginn rökstuðningur fyrir því hvers vegna setja eigi Hagavatnsvirkjun og Skrokkölduvirkjun í nýtingu. Það vantar allan rökstuðning.

Síðan er minnisblaðið sem kemur frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu mjög athyglisvert þar sem segir að virkjunarkostir eigi ekki að fara í meðferð á Alþingi fyrr en fjallað hafi verið um þá hjá verkefnisstjórn. Einhverjum hefði nú þótt það vera nægt tilefni til þess að staldra við og leggja ekki í þessa vegferð. En það virðist vera að menn leggi hér allt undir. Maður spyr sig: Hvaðan kemur þessi mikli þrýstingur til þingmanna fyrst hæstv. ráðherra Sigurður Ingi Jóhannsson treystir sér ekki að fara á svig við tillögu verkefnisstjórnar sem lagði bara til Hvammsvirkjun? Og hæstv. ráðherra Sigrún Magnúsdóttir hefur lýst því yfir að hún hefði talið rétt að eingöngu væri fjallað um tillögu fyrirrennara hennar um Hvammsvirkjun.

Hvað gengur mönnum til? Hvaða þrýstingur er þarna á ferðinni? Manni finnst þetta vera ekki alveg nógu gott og það er í raun mjög slæmt ef menn telja að þeir hafi það umboð og þá fagþekkingu að geta tekið svona í fangið það sem er hlutverk faghópa innan verkefnisstjórnar að fjalla um og hefur ekkert verið skoðað af þeirra hálfu, eins og á við um Hagavatnsvirkjun.

Ég held að þjóðin sé sífellt að verða meira meðvituð um að við látum ekki brjóta svona á því sem snýr að náttúrunni. Við eigum að láta náttúruna njóta vafans. Það kom hér fram áðan að menn nefndu Sveifluháls og fleiri staði á Suðurnesjum sem settir hefðu verið í nýtingarflokk. Það er vissulega þannig varðandi rammaáætlun að það eru ekkert allir sáttir. En allir alþingismenn samþykktu að fara í þessa vegferð á síðasta kjörtímabili, að farið yrði í þetta faglega ferli og að menn mundu ekki handvelja einn og einn kost út og raða því sjálfir í virkjun eða vernd hér á hv. Alþingi. Þess vegna getur það auðvitað komið upp að einhverjir kostir fari eftir þetta faglega ferli í nýtingarflokk, sem margir hefðu kannski ekki viljað sjá fara þangað. En um það snýst nú sáttin, menn eru þá ekki endilega sáttir um alla hluti en þeir verða samt að standa með þeirri niðurstöðu sem kemur út úr því faglega ferli. Þannig er það nú bara.

Nú ætla menn að fara hratt aftur á bak, að bakka og viðhafa hérna forneskjuleg vinnubrögð sem ekki eru til fyrirmyndar og ekki til sóma. Ég á ekki von á öðru en að hér verði hávær mótmæli, ekki bara hér á þingi hjá okkur sem erum í stjórnarandstöðunni heldur úti í öllu þjóðfélaginu. Hvers vegna í ósköpunum kalla menn eftir þessu stríði núna þegar við stöndum frammi fyrir því að þjóðfélagið logar í verkfallsátökum? Og hvað ættum við að vera að gera hér, alþingismenn, annað en að reyna að liðka eitthvað fyrir því að samningar náist? Þetta útspil er ekki neitt í þá átt. Það er bara til þess að herða alla hnúta enn frekar. Stundum finnst manni að átakasækni fylgi þessari ríkisstjórn og stundum mikið ráðaleysi. Menn eru mismunandi átakasæknir en slíkt hefur því miður fylgt hv. formanni atvinnuveganefndar, en ég ætla ekki að segja neitt meira en það. Mér hefur nú þótt að hann væri nú frekar að mýkjast heldur en hitt, vegna þess að hann hefur kannski rekið sig á að menn geta ekki gengið fram með hnefann á lofti og náð öllu sínu fram og að menn þurfa að fara eftir þeim leikreglum sem við höfum sett okkur sjálf. Það held ég að hv. þm. (Forseti hringir.) Jón Gunnarsson ætti að gera og sýna þá skynsemi að draga þetta mál til baka og fara eftir þeim leikreglum sem þingið hefur sett sér sjálft.