áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir mjög góða ræðu og lýsi yfir stuðningi við það nefndarálit sem hún flutti hér og þá frávísunartillögu sem hún er talsmaður fyrir. Ég tók þátt með henni í að móta þá tillögu á sínum tíma í atvinnuveganefnd þegar ég sat þar fyrir hv. þm. Björt Ólafsdóttur.
Mig langar að spyrja út í eitt atriði sem ekki hefur komið til tals hér í dag, en það er varðar Hagavatnsvirkjunaráformin. Okkar helsti sérfræðingur í jarðvegseyðingu, Ólafur Arnalds prófessor, hefur sagt að það skorti verulega á rannsóknir á áhrifum stíflunnar Farsins og þess að breyta Hagavatni í sitt upprunalega horf, í það sem það var á fjórða áratug síðustu aldar þegar Farið varð til og vatnið lækkaði töluvert. Hann hefur leitt að því rök að stíflun vatnsins og færsla í upprunalegt horf gæti þvert á móti orðið til þess að auka mjög sandfok á þessu svæði og hafa áhrif á allt suðvesturhornið, ekki bara uppsveitir í Bláskógabyggð og nágrenni heldur líka svæði okkar sem búum hér á höfuðborgarsvæðinu og suður með sjó.
Voru einhver rök, svo hv. þingmaður viti, eða einhverjar upplýsingar sem komu fram fyrir hv. atvinnuveganefnd sem urðu til þess að sannfæra nefndina um að málflutningur okkar helsta sérfræðings í þessum efnum stæðist ekki skoðun eða (Forseti hringir.) væri byggður á sandi?