144. löggjafarþing — 105. fundur,  12. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[22:20]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta atvinnuvn. (Lilja Rafney Magnúsdóttir) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Já, það er mjög umhugsunarvert og ég get ekki sagt að minnisblöðin hafi fengið þá umfjöllun sem skyldi innan atvinnuveganefndar, því miður. Og auðvitað getum við sem sitjum í atvinnuveganefnd kennt okkur sjálfum um að hafa ekki gripið þarna inn í og séð hvaða skilaboð komu frá ráðuneytinu, sem voru skýr og skilmerkileg, sérstaklega frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, um að ekki væri hægt að fara með einhverja virkjunarkosti inn á Alþingi án þess að þeir færu fyrst til verkefnisstjórnar.

Málið er ekki í neinu tómarúmi, viðkomandi ráðherrar bera auðvitað ábyrgð á umsögnum sem koma úr ráðuneytum þeirra, þannig að þeir ættu að vera upplýstir um þessi álit sem hljóta að vera byggð á lögfræðiálitum innan þessara ráðuneyta. Það er grafalvarlegt mál að menn láti það viðgangast þegar þeir hafa slík álit, og ég beini því sérstaklega til núverandi hæstv. umhverfisráðherra og fyrrverandi umhverfisráðherra, að stoppa ekki yfirgang meiri hluta atvinnuveganefndar, að leiða þeim það ekki fyrir sjónir að ekki sé liðið að menn fari algjörlega á skjön við álit ráðuneytanna í þessum efnum. Það verður fróðlegt að heyra hvað hæstv. umhverfisráðherra segir um þessi álit þegar hún kemur í ræðustól á eftir.