áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegur forseti. Ýktasta dæmi um málþóf sem ég man úr þingsögunni var hv. þingmaður sem flutti sömu ræðuna aftur frá orði til orðs héðan úr ræðustól þannig að þingmönnum ofbauð svo að þeir ákváðu að ná í handritið af ræðunni og endurtaka líka frammíköllin svo að fáránleikinn væri fullkominn. Sá hv. þingmaður sem þannig stóð að málþófi hét Jón Gunnarsson. Það er ástæða til að segja hv. þm. Jóni Gunnarssyni að það er enn ekki einu sinni búið að mæla fyrir nefndaráliti. Það er heldur ekki búið að mæla fyrir umsögnum úr umhverfisnefnd og það eru margir, margir dagar, hv. þm. Jón Gunnarsson, þar til hægt verður að byrja að tala um málþóf í þessu máli.