144. löggjafarþing — 105. fundur,  12. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[22:58]
Horfa

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (Sf) (um fundarstjórn):

Hæstv. forseti. Ég vil hvetja þá sem fara með meirihlutavald langt umfram kosningafylgi til að sýna því virðingu þegar við nýtum rétt okkar sem þingmenn í minni hluta hér í salnum til að tjá vandlæti okkar á vinnubrögðunum.

Síðan vildi ég nota tækifærið, af því að við höfum kvartað yfir því að þessi umræða fari fram, og nefna að það er ekki bara verið að brjóta leikreglur hér heldur er verið að svíkja eigin sáttmála. Í stjórnarsáttmála þessarar hægri stjórnar stendur undir kaflanum Umhverfismál, með leyfi forseta:

„Rammaáætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða verður endurskoðuð á grundvelli niðurstaðna faghópa sérfræðinga sem verkefnisstjórn skipaði.“

Það verður áhugavert að heyra þingmenn meiri hlutans tjá okkur (Forseti hringir.) hvernig þau telja þetta vera í samræmi við stjórnarsáttmálann sinn, svo að við förum ekki út í leikreglurnar sem hafa verið samþykktar með lögum.