144. löggjafarþing — 105. fundur,  12. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[23:49]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseti vill enn á ný árétta, m.a. eftir síðustu ræðu, að hv. þingmönnum er ekki ætlað að hefja hér framhaldsumræðu um efnisatriði málsins undir þessum dagskrárlið. Forseti hefur reynt að vera mjög umburðarlyndur þegar kemur að þessum dagskrárlið og þannig hefur það svo sem verið praktíserað en stundum gengur þetta úr hófi og þannig hefur það verið nú í kvöld.