144. löggjafarþing — 105. fundur,  12. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[23:58]
Horfa

Svandís Svavarsdóttir (Vg) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Hv. þm. Jón Gunnarsson segir, með leyfi forseta: „Einstaka ráðherra er ekki sáttur við málið“ — og þá er hann að tala um umhverfisráðherrann. Hv. þm. Páll Jóhann Pálsson segir: „Það er búið að fjalla um Hagavatnsvirkjun.“ Það er að vísu þannig að það vantar kannski gögn.

Þetta er staða umhverfismála á Alþingi Íslendinga nú á miðnætti. Málaflokkurinn er fullkomlega niðurlægður og ráðherrann til viðbótar, er algjörlega niðurlægður í þessari umræðu. Innihaldið og ég ætlaði að segja risið á umræðunni endurspeglast í þeim ótrúlega þvættingi sem kemur hér frá hv. þm. Páli Jóhanni Pálssyni og hv. formanni atvinnuveganefndar sem verður bara (Forseti hringir.) skrifað á spjöld sögunnar.

Virðulegi forseti. Má kannski byrja aðeins rólegar á bjöllunni þannig að fólk bara missi ekki meðvitund úti í bæ?

Það er ekki hægt að hefja þingfund hér á morgun öðruvísi en að eiga samráð við þingflokksformenn um það með hvaða hætti dagskrá morgundagsins verður. Það er ekki viðunandi öðruvísi en að þetta mál verði tekið af dagskrá. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)