144. löggjafarþing — 105. fundur, 12. maí 2015.
áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
244. mál
Nú er forseta nokkur vandi á höndum. Heimild til þingfundar stendur eingöngu til 12. Það er tæplega mínúta til stefnu. Hv. þm. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir hafði kvatt sér hljóðs um fundarstjórn forseta en forseti getur ekki leyft að þessi umræða standi lengur þar sem tíminn er úti.