dagskrá þingsins.
Virðulegur forseti. Við, allnokkur hópur þingmanna, á þriðja tug alþingismanna, freistuðum þess í gær að fá meiri hlutann til að hverfa frá þeirri villu að vera með furðulegt deilumál á dagskrá þegar full þörf er á því að ræða kjör fólks í landinu og leiðir til þess að bæta þau kjör fólks sem og stöðu heimilanna en ekki að standa í svona furðutillögum eins og hér eru á borð bornar. Eftir þá atkvæðagreiðslu hvöttum við forseta til að íhuga vandlega stöðuna og taka önnur og þarfari mál á dagskrá í dag og lýsum því enn og aftur yfir að það er ekki með okkar vilja sem við ræðum þessi fánýtu efni hér í dag. Við vildum gjarnan ræða um landsins gagn og nauðsynjar og það sem við getum lagt til í kjaraviðræðunum sem nú brenna mjög á þjóðinni. Ef forseti ætlar ekki að taka dagskrána til endurskoðunar eftir hvatningu okkar held ég að það sé einboðið (Forseti hringir.) að við þurfum að freista þess hér á föstudaginn (Forseti hringir.) með dagskrártillögu á nýjan leik að fá þetta vonda mál af dagskránni, enda engum til gagns að ræða það hér.