144. löggjafarþing — 106. fundur,  13. maí 2015.

dagskrá þingsins.

[15:06]
Horfa

Róbert Marshall (Bf):

Virðulegur forseti. Það verður ekki nógsamlega oft sagt í þessum sal undir þessari umræðu og undir liðnum um fundarstjórn forseta að þetta mál sem var sett á dagskrá af meiri hluta þingsins í gær er ekki það mál sem við í minni hlutanum viljum eyða tíma okkar í að ræða hér í dag, hugmyndir eða jafnvel óra hv. þm. Jóns Gunnarssonar í virkjunarmálum, það er algjör tímaeyðsla. Það sem við ættum að vera að gera núna og væri eðlilegt og við höfum lagt áherslu á frá því við funduðum með forseta á mánudag er að taka okkur tíma í þinginu til þess að fara yfir stöðuna á vinnumarkaði, til þess að fara yfir með hvaða hætti við getum stillt saman strengi okkar í pólitíkinni til þess að koma til móts við þá stöðu, þá grafalvarlegu stöðu sem þar er upp komin, fara yfir sviðið, athuga hvort það sé eitthvað í skattalöggjöfinni, í umhverfi fyrirtækja, í félagslega geiranum, í húsnæðismálunum, sem við getum gert til þess að liðka fyrir þeirri stöðu sem upp er komin. Það er ekki val ríkisstjórnarmeirihlutans á þessari stundu. Við blasir þess vegna algjört getuleysi.