144. löggjafarþing — 106. fundur,  13. maí 2015.

dagskrá þingsins.

[15:21]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf):

Virðulegur forseti. Þetta er hárrétt hjá hv. þm. Katrínu Júlíusdóttur. Þessi furðutillaga er smjörklípa. Formenn stjórnarflokkanna, dr. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bjarni Benediktsson, eru með allt á hælunum í tveimur stærstu málum samtímans, kjaradeilunum annars vegar og slagnum við kröfuhafana hins vegar. Til að beina ljósinu frá þeirri neyðarlegu staðreynd vilja þeir hafa allt í fíflagangi í þinginu. (Gripið fram í.)Þess vegna hafa þeir falið hv. þm. Jóni Gunnarssyni forustuna hér í salnum.