144. löggjafarþing — 106. fundur,  13. maí 2015.

dagskrá þingsins.

[15:30]
Horfa

Árni Páll Árnason (Sf):

Virðulegi forseti. Hnútukast hv. þm. Jóns Gunnarssonar áðan þar sem hann rakti afstöðu eintaka þingmanna til einstakra virkjana sýnir nákvæmlega það hættuspil sem ríkisstjórnarmeirihlutinn er að leika með því að setja kerfi rammaáætlunar í uppnám. Það er verið að flytja aftur inn í þingsali þras um einstaka virkjunarkosti. Það er stærsta framlag rammaáætlunar að ryðja þeim átökum burt af vettvangi stjórnmálanna. Hér er verið að flytja þau átök aftur inn í þingsali og á svið stjórnmálanna. Það er stóra hættan.

Ummæli hv. þm. Jóns Gunnarssonar hér í gær sem lýstu eins og hér hefur komið fram réttilega kvenfyrirlitningu í garð hæstv. umhverfisráðherra og líka stækri fyrirlitningu í garð samstarfsflokksins og ráðherra hans voru auðvitað með þeim hætti að það ætti að kalla á einhvers konar endurmat á því uppleggi sem hér er fyrir hendi (Forseti hringir.) og að minnsta kosti verða til þess að menn endurskoði dagskrá þessa fundar.