144. löggjafarþing — 106. fundur,  13. maí 2015.

umræðuefni dagsins.

[16:41]
Horfa

Guðmundur Steingrímsson (Bf):

Virðulegi forseti. Ef frekja, yfirgangur, stífni og þvermóðska er karlmennska er ég ekki alveg viss um að ég vilji láta kenna mig við það hugtak. Ég mundi telja það hugrekki hins vegar, ef það er það sem hv. þingmaður átti áðan við með karlmennsku, að koma hingað upp, taka þátt í umræðunni og svara málefnalegum spurningum um lögmæti þeirrar breytingartillögu sem meiri hluti atvinnuveganefndar hefur lagt fram.

Hér er til dæmis ein spurning. Ég held að það sé alveg fyrirliggjandi að hæstv. þáverandi umhverfisráðherra og raunar núverandi umhverfisráðherra vilji mjög gjarnan virkja allan neðri hluta Þjórsár, allar þær virkjanir sem þar eru í boði. Af hverju lagði ráðherrann ekki fram þingsályktunartillögu með þeim þremur virkjunum? Af hverju gerði hann það ekki? Það er vegna þess (Forseti hringir.) að það hefði ekki verið í samræmi við lög. Það er vegna þess að verkefnisstjórnin hafði ekki lokið umfjöllun um tvær af þessum þremur virkjunum, (Forseti hringir.) þess vegna gat hann ekki lagt þetta fram. Af sömu (Forseti hringir.) orsökum geta þingmenn auðvitað ekki lagt fram breytingartillögur þess efnis. Þetta er málefnalegt. Sýndu nú hugrekki, hv. þingmundur — ja, þingmundur, það er nýyrði, [Hlátur í þingsal.] hv. þm. Ásmundur Friðriksson, og svaraðu þessari spurningu.