144. löggjafarþing — 106. fundur,  13. maí 2015.

umræðuefni dagsins.

[16:42]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. (Gripið fram í: Af hverju sagðirðu …?) Ég veit ekki nákvæmlega hvað hv. 7. þm. Suðurk. á við þegar hann segir að ég taki stefnumótun Sjálfstæðisflokksins af karlmennsku. Ég átta mig ekki á hvað hv. þingmaður á við og reyndar frábið mér persónulega að setja viðbrögð við stefnumörkun í einhver kynhlutverk. Burt séð frá því var ræða mín um fundarstjórn forseta áðan til þess að útskýra að þegar menn koma hingað og kvarta undan því að hér eigi sér stað málþóf hafa þeir annaðhvort ekki fylgst með því sem var í gangi í gær og í dag eða þá skortir hugmyndaflug til að finna út úr því hvernig eigi að leysa úr þessu vandamáli.

Það eru til mjög einfaldar lausnir á þeim málalengingum sem hér tíðkast. Ein einföld lausn er sú að hætta að setja á dagskrá mál sem allir vita að sprengja þingið í tætlur. Það er ein lausn. Önnur er að gefa minni hluta þingsins vald til að setja mál í þjóðaratkvæðagreiðslu, það mundi aldeilis breyta hlutunum hér á bæ, held ég, (Forseti hringir.) til hins betra, vil ég bæta við. Ég blæs á þvaður, virðulegi forseti, um málþóf. Hér er bara umræða um fundarstjórn vegna þess að fundarstjórnin er afleit.

Að lokum legg ég til (Forseti hringir.) að fundir fastanefnda Alþingis verði að jafnaði opnir.