áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni góða ræðu. Mig langar að taka upp þráðinn frá þeirri umræðu sem þingmaðurinn átti við hv. þm. Helga Hrafn Gunnarsson að því er varðar formið og efnið. Ég er sjálf dálítið þeirrar skoðunar að ástæðan fyrir því að við erum stödd hér að því er varðar formið sé virðingarleysi fyrir efninu. Að hv. meiri hluti í þinginu, hv. þm. Jón Gunnarsson og hans fylgismenn, fái stuðning einhverra sem máli skipta til þess að vaða svona fram vegna þess að það er ekki fyrir hendi raunveruleg virðing fyrir náttúru Íslands, það sé hin raunverulega ástæða. Það sé líka ástæðan fyrir því að hæstv. ráðherra Sigrún Magnúsdóttir er látin vera hérna ein úti á klakanum í gærkvöldi og ekki nokkur maður sem ver hennar málflutning, vegna þess að það sé í raun og veru litið svo á að umhverfis- og náttúruverndarmál séu ómerkilegur málaflokkur, sé málaflokkur sem þurfi ekki að sinna vel, sem þurfi ekki að umgangast af virðingu, sem þurfi ekki að manna almennilega, eins og kom fram á fyrri hluta kjörtímabilsins þegar hæstv. ráðherra Sigurður Ingi Jóhannsson sinnti ráðuneytinu í hjáverkum. Og það varð niðurstaðan eftir að sá hinn sami hafði talað um að réttast væri að leggja ráðuneytið niður.
Virðulegi forseti. Ég tel mikilvægt að við áttum okkur á því að sá staður sem við erum á í forminu ræðst af virðingarleysi við innihaldið. Ég vil spyrja hv. þingmann hvort hann sé sammála mér um þetta, vegna þess að mér finnst það gerast oftar en ekki að ef maður fer að reyna að greina mjög stíft á milli efnis og innihalds að þá missir maður sjónar á því að aðferðin endurspeglar mjög oft stöðu innihaldsins.