áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegi forseti. Það er akkúrat þetta, þegar það kemur eitthvert faglegt mat, faglegi hópurinn gefur fullt hús stiga, (Gripið fram í.) þá hentar það ekki, það hentar ekki pólitískri afstöðu og þá er forsendum breytt og beðið um nýtt álit. Sama var með Skrokköldu. ASÍ segir í umsögn sinni:
„Rökin fyrir því að færa Skrokköldu, Hágönguvirkjun I og II úr virkjunarflokki í biðflokk eru að í faglegri vinnu við undirbúning rammaáætlunar hafi ekki verið tekið tillit til þeirra viðmiða sem stuðst var við þegar Vatnajökulsþjóðgarður var stofnaður. Það er sérkennilegt að breyta forsendum fyrir faglegu mati þegar það liggur fyrir og er að mati ASÍ ekki ásættanleg vinnubrögð. […] ASÍ mælist því til að umræddir sex virkjunarkostir verði færðir úr biðflokki og í nýtingarflokk í meðförum Alþingis.“
Eru þetta ekki kaldar kveðjur? Væri ástandið ekki betra ef við værum að setja þessar virkjanir í gang núna í ár (Forseti hringir.) 2015 og 2016?