144. löggjafarþing — 106. fundur,  13. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[18:59]
Horfa

Katrín Júlíusdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er hárrétt að þetta verður aldrei of oft sagt, vegna þess að það nær ekki í gegn. Það er munur á því að taka ákvörðun í ljósi umsagna eftir lögbundið umsagnarferli um að flytja kosti, ekki marga, minna en 10% af þeim kostum sem til umfjöllunar voru, í biðflokk og biðja verkefnisstjórnina um að skoða þá kosti aftur, gera það á styttri tíma en hið hefðbundna ferli gerir ráð fyrir og meta fyrir okkur umsagnirnar, og svo því sem hér er í gangi þar sem pólitísk smekksatriði ráða því hvað eigi að virkja í þessu tilfelli.

Virðulegi forseti. Það er himinn og haf á milli þessara tveggja aðferða og tveggja nálgana. Ef þessi ríkisstjórn og stjórnarmeirihluti ætti að geta borið það sem þeir eru að gera saman við það sem við gerðum þá væri það vegna þess að við hefðum flutt þessa (Forseti hringir.) kosti, t.d. Urriðafoss, í verndarflokk, en það var ekki gert, þótt sú sem hér stendur hefði gjarnan viljað gera það, vegna þess að mér finnst persónulega hann eiga heima þar.