144. löggjafarþing — 106. fundur,  13. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[19:05]
Horfa

Katrín Júlíusdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég held að á þeim 18 árum sem rammaáætlunarferlið hefur verið í gangi hafi það þróast. Menn hafa tekið inn nýjar breytur og nýja þætti til að miða við og það er eðlilegt framhald núna að taka hin samfélagslegu áhrif inn í verkferlana.

Mér finnst skipta máli að það verði gert. Ég tel að við eigum að gera breytingar á því umhverfi með það að augnamiði að samfélagsáhrifin verði metin líka. Þá er ég ekki að dæma ferlið afturvirkt. Þetta er einfaldlega hluti af framþróun verkfærisins sem það bætist inn í. Ég tel að á hverjum tíma hingað til hafi menn tekið bestu ákvarðanirnar út frá því sem þeim var ætlað og það er eðlilegt næsta skref í samfélagi sem gerir þær kröfur sem við gerum að taka samfélagsáhrifin inn í, þannig að já, ég er sammála þessu mati.