144. löggjafarþing — 107. fundur,  15. maí 2015.

áframhald umræðu um rammaáætlun.

[10:41]
Horfa

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (Sf):

Hæstv. forseti. Hér á dagskrá er áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, Hvammsvirkjun. Við vitum auðvitað öll hér inni að það er Hvammsvirkjun með breytingartillögum um fjórar aðrar virkjanir sem ekki hafa farið í lögformlegt ferli rammaáætlunar. Það hefur svælt fram sjálfa fjallkonuna. Við fengum mótmæli síðastliðinn miðvikudag, mótmæli eins og voru hér iðulega vegna virkjunarmála áður en rammaáætlun kom til. Það er í það far sem ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar vill setja þessi mál aftur. Ég er hissa á hæstv. forseta, þrátt fyrir álit umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, að hann hafi metið það svo að þessi breytingartillaga sé þingtæk. Hún er það ekki. Ég hef fjallkonuna til vitnis um það.