áframhald umræðu um rammaáætlun.
Herra forseti. Ég mótmæli dagskránni í þinginu í dag. Ég velti fyrir mér hvaða pólitík búi að baki, hvaða stjórnkænska sé í gangi að láta þingið ræða mjög umdeilda tillögu og halda því uppteknu við það, tillögu sem gengur gegn anda laga um rammaáætlun, tillögu sem gengur gegn tillögu hæstv. umhverfisráðherra, þegar nóg annað er um að ræða.
Ef hæstv. forseti og hæstv. ríkisstjórn vilja alls ekki að hv. þingmenn ræði hér ástandið á vinnumarkaði er ýmislegt annað til að ræða. Ég get nefnt til dæmis tvö mál sem afgreidd eru út úr fjárlaganefnd, úr fortíðinni. Það er ekki enn búið að afgreiða lokafjárlög fyrir árið 2013 og það er ekki enn búið að afgreiða framtíðarplan hæstv. ríkisstjórnar í ríkisfjármálum fyrir næstu fjögur ár.