144. löggjafarþing — 107. fundur,  15. maí 2015.

áframhald umræðu um rammaáætlun.

[10:51]
Horfa

Guðmundur Steingrímsson (Bf):

Virðulegur forseti. Það er mjög margt undarlegt við þessi þingstörf núna þegar hillir undir lok þessa þings. Nokkrir dagar eru eftir og við höfum ekki séð neinn lista frá ríkisstjórninni yfir forgangsmál ríkisstjórnarinnar sem væri mjög eðlilegt á þessum tímapunkti til að við getum stillt saman strengi. Eitt mesta átakamál þjóðarinnar og samtíðarinnar er komið inn í þingsal án þess að nokkuð liggi á afgreiðslu þess. Það er verulega umdeilanlegt mál. Til hvers? Og það er gert í engu samráði við flokkana hér á þingi, þingflokksformenn eða formenn. Það er því mjög eðlilegt að maður spyrji, vegna þess að þetta er mjög óvenjulegt. Hvað er í gangi? Af hverju er þetta gert? Mér finnst hæstv. forseti skulda þingheimi skýringar á þessu. Eru engin önnur mál? Það er í rauninni skelfilegt, (Forseti hringir.) vegna þess að ástandið í samfélaginu kallar (Forseti hringir.) nú á mörg brýn mál sem við ættum að vera að ræða hér og afgreiða. Hvar er samgönguáætlun til dæmis? (Gripið fram í: Nákvæmlega.) (Forseti hringir.) Ríkisstjórnin er að brjóta eitt ferli sem er rammaáætlun og fer ekki eftir öðru sem er samgönguáætlun. Allt er í pressu.