áframhald umræðu um rammaáætlun.
Hæstv. forseti. Ég treysti á að hæstv. forseti hafi heyrt þá athugasemd að hér vilja allir ræða verkföll. Til þess dugir ekki óundirbúinn fyrirspurnatími. En ég tek bara undir áskorun hv. þm. Willums Þórs Þórssonar.
Ég vil benda á það, hæstv. forseti, að ef við værum hér að ræða það sem heiti dagskrárliðarins segir til um, um Hvammsvirkjun, væri löngu búið að afgreiða það mál. Við erum að ræða um hvort henda eigi rammaáætlun. Það er ekkert smámál, hv. þm. Páll Jóhann Pálsson. Það er lítilsvirðing við fleiri þing. Það er búið að vinna að rammaáætlun í 15, 20 ár til að finna farveg til þess að leysa ágreining í samfélaginu. Hvers vegna eiga nokkrir þingmenn að hafa þann rétt að henda því öllu saman og hleypa öllu upp í loft í samfélaginu og breyta þessu samfélagi aftur í það að menn geti verið með einhverjar tillögur í vasanum um það að virkja hér og þar og að það verði einstaklingsmál að ákveða það með einhverjum kaupmálum á milli stjórnarflokkanna. Ég vil ekki þannig samfélag. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)