áframhald umræðu um rammaáætlun.
Virðulegi forseti. Ég ætla að taka undir orð hv. þm Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur um að menn setjist nú niður og reyni að finna lausn á þessu máli svo við getum komist í að ræða önnur þarfari mál. Ég held að það sé alveg ágætt að stytta í þessari umræðu og reyna að ljúka henni. Það er örugglega hægt að gera það með góðum vilja í dag ef þingheimur kærir sig um það, setjast bara niður og finna lausn á því.
Ég held að við getum ekki eytt tíma þingsins þriðja daginn í röð í að endurtaka sömu ræðurnar. Hér var verið að gera grín að hv. þm. Jóni Gunnarssyni fyrir að hafa endurtekið einhverja ræðu sem ég heyrði svo sem ekki, en mér heyrist að hér flytji hver þingmaðurinn á fætur öðrum sömu ræðuna aftur og aftur. Það er nú ekki til þess að auka álitið á þinginu. Ég held að við getum öll verið sammála um það. Ég held að það sé mjög mikilvægt að við reynum að stokka upp spilin núna og reynum að gefa á nýjan leik og ná áttum í þessu máli. Ég held að það sé mjög mikilvægt.
Ég hef rætt vandamálin á vinnumarkaði í þó nokkuð mörgum ræðum á þinginu á undanförnum missirum. Það voru litlar undirtektir. Núna hafa (Forseti hringir.) allir miklu meiri áhuga á því þegar (Forseti hringir.) skaðinn er skeður. Við skulum þá bara drífa okkur í þá (Forseti hringir.) umræðu sem fyrst.