stuðningskerfi til að auðvelda för hreyfihamlaðs fólks.
Hæstv. forseti. Ég kem hingað upp til að eiga orðastað við hæstv. heilbrigðisráðherra. Ég ætlaði að spyrja hann út í starfshóp um stuðningskerfi til að auðvelda för hreyfihamlaðs fólks. Þessi starfshópur skilaði skýrslu með tillögum í desember síðastliðnum og voru niðurstöður um umbætur í málaflokknum einróma. Breytingarnar lúta að breyttri flokkun styrkja og breyttu fyrirkomulagi vegna bílakaupa og eru tiltölulega kostnaðarlitlar þó að sjálfsögðu sé þarna um kostnað á þriðja hundrað milljóna að ræða til viðbótar.
Ég er með nokkrar spurningar til hæstv. heilbrigðisráðherra út af þessu máli. Gert er ráð fyrir í tillögunum að málaflokkurinn um stuðning vegna bifreiðakaupa og reksturs flytjist alfarið yfir til sjúkratryggingastofnunar. Ég vil því spyrja hæstv. ráðherra hvort gert sé ráð fyrir að fara að þessum tillögum og flytja málaflokkinn yfir á Sjúkratryggingar Íslands. Ég vil spyrja hvenær standi til að gera það og hvort verið sé að gera viðeigandi ráðstafanir varðandi breytingar á verklagi og flutningi starfsmanna. Síðast en ekki síst vil ég spyrja, af því að nú er verið að undirbúa fjárlög næsta árs, hvort sé gert ráð fyrir auknum fjárframlögum í samræmi við niðurstöður skýrslunnar í fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2016.