144. löggjafarþing — 107. fundur,  15. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[13:43]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Sigrún Magnúsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Þar sem vitnað var í orð mín frá ríkisstjórnarfundi í morgun í óundirbúnum fyrirspurnatíma fyrr í dag finnst mér rétt að segja Alþingi frá því að það er rétt sem þar kom fram hjá hæstv. forsætisráðherra, að ég tók rammaáætlun upp í ríkisstjórn. Ég vildi fjalla um stöðu mála og var hún rædd fram og til baka. Þar sagði ég það sem hæstv. forsætisráðherra gat um, að mér fyndist eðlilegt að meiri hluti atvinnuveganefndar mundi draga Hagavatnsvirkjun til baka og að hún yrði ekki með í umfjöllun hér. Það sagði ég eftir að hafa rætt við alla fulltrúa í meiri hluti atvinnuveganefndar. Þau voru sammála því að það yrði gert með þeim hætti, að það væri eðlilegt fyrst umhverfis- og auðlindaráðherra gæti ekki stutt þá virkjun að draga þann kost til baka.

Alla tíð úr þessum ræðustól hef ég sagt að Hagavatnsvirkjun nyti ekki forgangs hjá mér og að ég gæti ekki stutt hana þannig að ég er ekki að breyta um skoðun. Mér finnst svolítið misvísandi það sem komið hefur fram hjá sumum þingmönnum. Ég tók við sem ráðherra um áramót, forveri minn í embætti lagði fram Hvammsvirkjun, hún var komin til þinglegrar meðferðar þegar ég tók við og ég hef ekki skipt mér af þeirri þinglegu meðferð. Þetta mál er því til meðferðar hjá þinginu og er núna komið inn hérna og erum við með nefndarálit frá þeirri vinnu. Ég verð að segja að mér finnst nefndin hafa unnið allvel og kallað marga gesti fyrir og greinilega fjallað um þetta mál með góðum hætti. Allir þingflokkar á Alþingi hafa því verið meðvitaðir um það starf sem átt hefur sér stað í atvinnuveganefnd í vetur, að þar hefur verið fjallað um fimm kosti. Það er ekkert nýtt. Það er heldur ekkert nýtt að menn hafi stefnt að því að það kæmi hingað til umfjöllunar á Alþingi. Þannig vinnum við og þetta er búið að vera í hálft ár í nefndinni. Nú koma þessar tillögur sem sagt fram hér og er það einlæg ósk mín að fallið verði frá því að hafa Hagavatnsvirkjun með. Það er ekki síst út af því að ef við förum til baka í verkefnisstjórn nr. 2 þá fjallar verkefnisstjórn um rammaáætlun, um kostina þrjá í Þjórsá og Skrokköldu og Hagavatn og fleiri kosti. Kostirnir þrír í Þjórsá eru flokkaðir í orkunýtingarflokk sem og Skrokkalda en Hagavatnið sett í biðflokk. Þessir fimm virkjunarkostir eru því búnir að fara í gegnum ferli hjá faghópum verkefnisstjórnar og fá þannig faglega umfjöllun hjá okkar færustu sérfræðingum. Ég held að um það sé ekki deilt. Orkukostirnir í Þjórsá hafa enn fremur fengið endurtekna faglega umfjöllun hjá verkefnisstjórn í 3. áfanga. Það er rétt að geta þess að þann 12. júlí 2013 setti ráðherra viðauka við erindisbréf verkefnisstjórnar og fól henni að forgangsraða vinnu sinni þannig að hún framkvæmdi svo fljótt sem auðið væri mat á þeim sex virkjunarkostum sem færðir voru úr nýtingarflokki í biðflokk samkvæmt því sem var í 2. áfanga. Þeir kostir eru Urriðafossvirkjun, Holtavirkjun, Hvammsvirkjun, Skrokkölduvirkjun, Hágönguvirkjun og Hagavatn og Hólmsá við Atley. Þessa kosti bað ráðherra, forveri minn í starfi, verkefnisstjórn að skoða í upphafi 3. áfanga. Verkefnisstjórn taldi sig ekki hafa haft nægilegan tíma til að fjalla um alla þessa kosti sem ráðherra bað um, þ.e. sex kosti, en fjallaði sérstaklega um kostina þrjá í Þjórsá. Það endaði með því að verkefnisstjórn taldi sig enn ekki hafa fullkannað málið síðastliðið haust og setti fram mat á Hvammsvirkjun.

Í athugasemdum um rammaáætlun, í lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun, 48/2011, segir orðrétt:

„Í 3. mgr. kemur fram að verndar- og nýtingaráætlunin taki til virkjunarkosta sem verkefnisstjórnin hefur fjallað um. Er þannig við það miðað að Alþingi taki ekki afstöðu til annarra virkjunarkosta en verkefnisstjórnin hefur fjallað um.“

Eins og ég hef sagt var fjallað um þessa kosti í 2. áfanga og núna í upphafi 3. áfanga hefur verið fjallað mikið um kostina í Þjórsá.

Samkvæmt úrskurði forseta Alþingis frá 12. maí síðastliðnum eru lög nr. 48/2011 ekki skýr, eða eins og þar segir, með leyfi forseta:

„… ekki skýr um það hvort líta beri á umfjöllun 2. áfanga rammaáætlunar sem myndaði grunn að fyrstu ályktun Alþingis um áætlun og vernd og orkunýtingu landsvæða 14. janúar 2013, nr. 13/141, sem eins konar upphaf og að eftir því sem fram liðu stundir mundu ný gögn bætast við vegna komandi virkjunarkosta.“

Þetta er orðrétt upp úr úrskurði forseta 12. maí síðastliðinn. Ég lít svo á að ég sem aðrir þingmenn hlíti úrskurði forseta, að málið sé til þinglegrar meðferðar og þingtækt eins og niðurstaða hans sagði til um.

Ég held að ég þurfi ekki að hafa fleiri orð um þetta, en ég vildi koma hér upp fyrst og fremst til þess að skýra það að málið kom til umfjöllunar í ríkisstjórn með þessum hætti og skýra frá því hvaða orð ég lét þar falla um Hagavatnsvirkjun.