áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Frú forseti. Í minnisblaði því sem hv. þm. Katrín Júlíusdóttir vitnaði til frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu segir að um bæði Hagavatn og Skrokköldu eigi við að verkefnisstjórn hafi ekki fjallað efnislega um þessa virkjunarkosti. Raunar eru þrír aðrir til taldir. Ég vil því spyrja hvort nákvæmlega það sama eigi ekki við um Skrokköldu og Hagavatn, eins og hæstv. umhverfisráðherra hefur raunar gefið til kynna með orðum sínum áður.
Hins vegar langar mig að spyrja hvort það sé ekki skylda hæstv. umhverfisráðherra að standa með verkefnisstjórn um rammaáætlun sem hefur heldur ekki lokið umfjöllun um Holtavirkjun og Urriðafossvirkjun. Það er útskýrt mjög vel í þessu sama minnisblaði frá ráðuneyti hæstv. ráðherra að til að hægt sé að taka afstöðu til Holtavirkjunar og Urriðafossvirkjunar þurfi að liggja fyrir ákveðnar upplýsingar um markmið mótvægisaðgerða sem miði að verndun fiskstofna enda um að ræða gríðarleg verðmæti sem eru búsvæði laxfiska í Þjórsá.