144. löggjafarþing — 107. fundur,  15. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[14:11]
Horfa

Páll Jóhann Pálsson (F):

Virðulegi forseti. Ég fagna því að við séum komin í málefnalega umræðu, loksins. Nú erum við að hefja þriðja daginn í umræðu um þessi mikilvægu mál og þriðju ræðuna, ef frá er talin sú ræða þar sem mælt var fyrir nefndarálitum og ræða hæstv. ráðherra. Því miður hefur ekki verið mikil efnisleg umræða um þessa virkjunarkosti sem meiri hluti atvinnuveganefndar leggur til að bætt verði í nýtingarflokk. Aðallega hefur verið rætt um hvort hún sé þingtæk og hvort verið sé að brjóta lög þrátt fyrir að forseti hafi úrskurðað í málinu eins og þingsköp kveða á um. Ég ætla að gera tilraun til þess í ræðu minni að færa rök fyrir því.

Það er mikið kallað eftir þessum málum þrátt fyrir að einstakir þingmenn telji að svo sé ekki. Ég ætla að vitna í umsögn ASÍ, verkalýðsfélagsins, með leyfi forseta:

„Sjálfbær nýting auðlinda landsins er þjóðhagslega mikilvæg og er grunnur að samfélagslegri velferð og bættum lífsskilyrðum sem verkalýðshreyfingin berst fyrir.“

Er þetta svo léttvægt? Álfyrirtækin skaffa 10% af vergri landsframleiðslu til þjóðfélagsins. 700 fyrirtæki, lítil og meðalstór, þjóna þessum fyrirtækjum. Að mínu áliti er ekki lítið í húfi og víða kallað eftir virkjunum.

Ef við byrjum á neðri hluta Þjórsár þá leggur meiri hluti atvinnuveganefndar til að Holtavirkjun og Urriðafossvirkjun verði færðar úr bið- í nýtingarflokk með Hvammsvirkjun, rétt eins og verkefnisstjórn 2. áfanga rammaáætlunar lagði til. Þess má geta að þessar virkjanir fengu fullt hús stiga hjá öllum fjórum faghópunum sem tóku sér góðan tíma til að skoða þessi mál og komust að þeirri niðurstöðu.

Ekki var einhugur hjá verkefnisstjórn 3. áfanga um þá niðurstöðu að mæla aðeins með því að færa Hvammsvirkjun í nýtingu og skilaði fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga í stjórninni, Elín Líndal, séráliti þar sem hún lagði til að allir þrír kostirnir í neðri hluta Þjórsár færðust úr bið- í nýtingarflokk.

Orkustofnun bendir á að með samþykkt þingsályktunartillögu hafi verið horfið frá faglegum niðurstöðum fyrri verkefnisstjórnar vegna þriggja virkjunarkosta í vatnsafli á Suðurlandi, allra í Þjórsá. Í þeirri tillögu var gert ráð fyrir að hagkvæmustu og best rannsökuðu virkjunarkostirnir yrðu fluttir úr orkunýtingarflokki í biðflokk. Mjög margir umsagnaraðilar mæla með því að þessir þrír kostir verði fluttir yfir í nýtingarflokk. Samtök iðnaðarins, Orkustofnun og fleiri telja að verkefnisstjórnin hafi farið út fyrir verksvið sitt með gagnakröfum langt umfram það sem rammaáætlun gerir ráð fyrir við umhverfismat áætlana.

Ef þáverandi umhverfisráðherra hefði farið að lögum og staðfest skipulag sveitarfélagsins væru þær virkjanir jafnvel að hefja rafmagnsframleiðslu á þessu ári og því næsta, þ.e. 2015 og 2016. Ég ætla að leyfa mér að vitna aðeins í nokkrar umsagnir um þessi mál. Þessi kemur frá ASÍ, með leyfi forseta:

„Gögn þriggja virkjunarkosta, þ.e. Hvammsvirkjunar, Holtavirkjunar og Urriðafossvirkjunar, sem nú er lagt til að fari í biðflokk fengu fullt hús stiga (A) hjá öllum faghópunum. Þau rök sem færð eru fyrir tilflutningi þessara virkjunarkosta úr nýtingarflokki í biðflokk eru því ótrúverðug og ekki byggð á faglegum vinnubrögðum.“

Það er mat miðstjórnar ASÍ að upphaflega tillaga verkefnisstjórnar sé líklegust til að skapa sátt og hvetur Alþingi til að fylgja niðurstöðum fyrri verkefnisstjórnar. Það eru einhverjir fleiri en bara nokkrir þingmenn eða meiri hluti atvinnuveganefndar sem mæla með þessari virkjun.

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga, umsögninni var fylgt eftir á fundi atvinnuveganefndar Alþingis 12. nóvember sl., með leyfi forseta:

„Stjórn SASS leggur áherslu á að Alþingi afgreiði málið á grundvelli þeirrar vönduðu þverfaglegu vinnu sem unnin var á vegum verkefnisstjórnar rammaáætlunar og tillögum hennar um flokkun virkjunarkostanna í verndarflokk, biðflokk og nýtingarflokk. Samkvæmt tillögum verkefnisstjórnar voru fjórir af sex vatnsaflsvirkjunarkostum á Suðurlandi í nýtingarflokki. Þingsályktunartillagan gerir ráð fyrir að þeir fari allir í biðflokk. Að mati stjórnar SASS er það óviðunandi bæði vegna þess að ekki eru færð sterk rök fyrir þeim tillögum og einnig er um brýnt hagsmunamál að ræða fyrir sunnlendinga vegna þeirrar atvinnuuppbyggingar sem gera má ráð fyrir að fylgi í kjölfarið. Stjórn SASS skorar því á Alþingi að farið verði að tillögum verkefnisstjórnar um þá virkjunarkosti sem fara eigi í nýtingarflokk.“

Þeir sem gera sér ekki grein fyrir því að þetta er stór liður í atvinnuuppbyggingu á Suðurlandi og á Íslandi eru frekar veruleikafirrtir, segi ég.

Samband íslenskra sveitarfélaga, það eru öll sveitarfélög á Íslandi, segir um Holtavirkjun og Urriðafossvirkjun, með leyfi forseta:

„Verkefnisstjórn um rammaáætlun 2 lagði til, að loknu löngu og afar vönduðu samráðsferli, að allir þrír virkjunarkostirnir í neðri hluta Þjórsár yrðu settir í nýtingarflokk. Af hálfu sveitarfélaga sem málið varðar og fleiri hagsmunaaðila voru gerðar alvarlegar athugasemdir við breytingar sem gerðar voru af hálfu ráðherra á tillögu verkefnisstjórnar, sem leiddu til þess að allir þrír virkjunarkostirnir voru færðir í biðflokk.

Rök fyrir breytingum á röðun umræddra þriggja virkjunarkosta í neðanverðri Þjórsá voru einkum þau að rannsaka þyrfti betur áhrif virkjananna á laxfiska í Þjórsá. Álit sérfræðinga um það álitaefni liggur nú fyrir, sem og ítarleg svör Landsvirkjunar um mótvægisaðgerðir. Í áliti sérfræðinganna koma fram gagnlegar ábendingar sem taka þarf tillit til við hönnun virkjana og útgáfu virkjana- og framkvæmdaleyfa sem kom til á síðari stigum. Það er álit undirritaðra að með álitinu og svörum Landsvirkjunar hafi með trúverðugum hætti verið svarað þeim álitaefnum sem leiddu til þess að vikið var frá tillögu verkefnisstjórnar um rammaáætlun 2 og því sé ekkert því til fyrirstöðu að allir þrír virkjunarkostirnir verði nú settir að nýju í nýtingarflokk rammaáætlunar.“

Ef hv. þingmenn vilja aðeins glöggva sig á því, fyrir þá sem ekki hafa kynnt sér það, að þótt virkjunarkostir séu komnir í nýtingarflokk er ekki þar með sagt að þeir verði virkjaðir. Þá er eftir mat á umhverfisáhrifum framkvæmda þar sem menn telja að þessar athuganir á laxastofninum í neðri hluta Þjórsár eigi við. Þá eiga eftir að koma ýmsar frekari leyfisveitingar, t.d. nýtingarleyfi, framkvæmdaleyfi og virkjunarleyfi. Það er ekki fyrr en eftir það sem virkjunarframkvæmdir geta hafist.

Varðandi hina þrjá virkjunarkostina, þ.e. Skrokköldu og Hágöngu I og Hágöngu II, sem færðir voru út nýtingarflokki yfir í biðflokk á sama tíma á grunni neikvæðra umsagna er freistandi að gera það sama nú því að margar umsagnir eru á þá leið að færa alla sex virkjunarkostina úr bið- í nýtingarflokk sem þvert á faglegt mat verkefnisstjórnar í rammaáætlun 2 voru færðir úr nýtingarflokki yfir í bið, Hágöngu I, Hágöngu II og Skrokköldu. Má þá helst nefna Samband íslenska sveitarfélaga, Samtök sunnlenskra sveitarfélaga, Orkusöluna, Samorku og Íslenska vatnsorku. Allir þessir sex kostir hafa fengið umfjöllun í verkefnisstjórn eins og lög gera ráð fyrir. Þrátt fyrir það leggur meiri hluti atvinnuveganefndar aðeins til að Skrokkalda verði færð í nýtingu og Háganga I og Háganga II bíði næstu umferðar.

Hvaða umhverfisáhrif hefur Skrokkalda? Það verður ekkert miðlunarlón, hún er neðan jarðar, aðeins innan við 1 km affallsskurður sem mun sjást fyrir utan vegi. Það að hunsa niðurstöðu 2. áfanga verkefnisstjórnar finnst mér svolítil niðurlæging. Það lá mikil vinna á bak við þessa skýrslu eins og reyndir hv. þingmenn vita. Þess vegna finnst mér ansi lítið gert úr henni með því að vísa bara í næstu, að hún sé ómerk af því að sú 3. er komin.

Ég vil benda hv. þingmönnum á að 2. áfangi er þessi doðrantur [Þingmaður sýnir skýrslu.], mikil vinna. Faghópar fjölluðu um þessi mál. Ég held að það hafi verið 66 kostir sem allir faghóparnir fjölluðu um. Það er miklu minni vinna á bak við 3. áfanga.

„Hinn 12. júlí 2013 setti umhverfis- og auðlindaráðherra viðauka við erindisbréf verkefnisstjórnar þar sem tilmælum er beint til verkefnisstjórnarinnar að forgangsraða vinnu sinni þannig að hún framkvæmi eins fljótt og auðið er faglegt mat á þeim sex virkjunarkostum sem færðir voru úr nýtingarflokki í biðflokk eftir umsagnarferli annars áfanga rammaáætlunar og þeim tveimur kostum sem ekki fengu fullnægjandi mat í meðförum fyrri verkefnisstjórnar, þ.e. Hagavatn og Hólmsá við Atley. Óskað var eftir því að tillögur verkefnisstjórnar um framangreinda kosti mundu liggja fyrir ekki síðar en 15. febrúar 2014 […]

Haustið 2013 varð verkefnisstjórn ljóst að hún mundi eingöngu ná að fjalla um þá þrjá virkjunarkosti í neðri hluta Þjórsár sem fjallað er um í 12. kafla álits meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis um núgildandi verndar- og orkunýtingaráætlun. Í samræmi við ákvæði 10. gr. laga nr. 48/2011 um verklag og málsmeðferð lagði verkefnisstjórn verndar- og orkunýtingaráætlunar fram tillögur sínar til ráðherra 21. mars …“

Nefndin segir eftir nokkrar athugasemdir, með leyfi forseta:

„Of ítarlegra gagna er krafist, einkum varðandi mótvægisaðgerðir. […]

Athugasemdir um þetta atriði komu m.a. fram í umsögnum nr. 5, 12, 14 og 28. Þar er bent á að þau gögn sem verkefnisstjórn óskaði eftir frá virkjunaraðilum hafi verið mun ítarlegri en ætlast má til að séu til staðar fyrir afgreiðslu á skipulagsstiginu.

Verkefnisstjórn gerir sér grein fyrir því að gögnin sem krafist var fyrir vinnu hennar í þessari umferð eru ítarlegri en venja er á skipulagsstigi. Að mati verkefnisstjórnarinnar var hins vegar ekki unnt að vinna verkefnið sem fyrir hana var lagt með öðrum hætti, enda voru svo fáir kostir undir að ekki var hægt að raða kostunum eins og gert er ráð fyrir í aðferðafræði rammaáætlunar …“

Hún var með öðrum orðum ekki eins ítarleg og þeir gátu ekki raðað kostunum upp á nýtt. Í lokaorðum segir, með leyfi forseta:

„Aðferðafræðin gefur ekki möguleika á að framkvæma mat á stökum virkjunarkosti eða mjög fáum virkjunarkostum, enda er þá ekki hægt að framkvæma marktækan samanburð á milli kosta.“

Fyrir þá kosti sem ekki var raðað upp í 3. áfanga hljótum við að styðjast við 2. áfanga þar sem mörg ár eru á bak við þá vinnu. (Gripið fram í: Þú veist ekkert!) Ég get ekki dregið aðra ályktun en þá að þessi vinna sé í fullu gildi.

Varðandi það hvort þingsályktunartillagan sé þingtæk eða ekki þar sem ítrekað hefur verið vitnað í minnisblað frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti og umhverfis- og auðlindaráðuneyti þá langar mig að lesa aðeins upp úr því plaggi, með leyfi forseta:

„Þegar ráðherra hefur lagt fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um verndar- og orkunýtingaráætlun hefur málið verið lagt fyrir þingið og komið á forræði þess. Lög nr. 48/2011 fjalla eðli málsins samkvæmt ekki um það hvaða málsmeðferð skuli viðhöfð þegar löggjafarvaldið hefur málið til meðferðar enda gilda um það lög nr. 55/1991, um þingsköp Alþingis eins og um önnur þingmál. Í 4. mgr. 45. gr. þingskapa kemur fram að við síðari umræðu tillögu til þingsályktunar skuli ræða tillögugreinar og breytingartillögur við þær.“ — Takið eftir: breytingartillögur við þær. — „Ljóst er því að Alþingi getur gert breytingar á þingsályktunartillögum sem lagðar eru fyrir þingið.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið bendir á að ef gerðar eru breytingar á tillögu til þingsályktunar um breytingu á þingsályktun um verndar- og orkunýtingaráætlun í meðförum þingsins ber ætíð að líta til ákvæða laga nr. 48/2011, þar á meðal markmiðs þeirra. Að mati ráðuneytisins getur þingið, að teknu tilliti til laga nr. 48/2011, lagt til breytingar á flokkun þeirra virkjunarkosta sem tillagan tekur til, enda hafi kostirnir fengið umfjöllun verkefnisstjórnar í samræmi við ákvæði laganna.“ — Ekki deilum við um það hvort þeir hafi fengið faglega meðferð. — „Eins og fram hefur komið er ferlið við flokkun virkjunarkosta lögbundið þar sem kveðið er á um að verkefnisstjórn vinni tillögur til ráðherra sem síðan tekur þær til skoðunar. Grundvöllurinn fyrir því að virkjunarkostur sé flokkaður í verndarflokk eða nýtingarflokk er sá að kosturinn hafi fengið efnislega umfjöllun hjá verkefnisstjórn í samræmi við áðurnefnda málsmeðferð í lögum nr. 48/2011. […] Er þannig miðað við að Alþingi taki ekki afstöðu til annarra virkjunarkosta en þeirra sem verkefnisstjórnin hefur fjallað um.“

Verkefnisstjórnin er búin að fjalla um alla þessa kosti. Ég held áfram að lesa, með leyfi forseta:

„Eins og fram kemur í athugasemdum við þá þingsályktunartillögu sem nú liggur fyrir á Alþingi var af hálfu umhverfis- og auðlindaráðherra gerður viðauki við erindisbréf verkefnisstjórnar þann 12. júlí 2013. Þar var þeim tilmælum beint til verkefnisstjórnarinnar að forgangsraða vinnu sinni þannig að hún framkvæmdi eins fljótt og auðið væri faglegt mat á þeim sex virkjunarkostum sem færðir voru úr nýtingarflokki í biðflokk eftir umsagnarferli 2. áfanga rammaáætlunar og þeim tveimur kostum sem ekki fengu fullnægjandi mat í meðförum fyrri verkefnisstjórnar …“

Ég deili ekki við dómarann. Forseti Alþingis hefur skorið úr um þetta mál og ég kýs að deila ekki við dómarann. Ég kvarta ekki yfir dómaranum en fagna því að við skulum vera farin að ræða hér málefnalega um þessa virkjunarkosti.