144. löggjafarþing — 107. fundur,  15. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[14:41]
Horfa

Páll Jóhann Pálsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég held að hv. þingmaður hafi ekki alveg verið að hlusta á ræðuna mína. Hún hefur alla vega brosað út í annað þegar ég hef lesið upp úr umsögnum frá ASÍ, ítrekað. (KaJúl: Svaraðu spurningunni.) Við erum … (KaJúl: Svaraðu spurningunni.) — Hvað ég geri við umsagnir? Það var á grundvelli umsagna sem við komum með þessa breytingartillögu. Það kom ítrekað fram í umsögnum (Gripið fram í.) sveitarfélaga og frá mörgum aðilum um að það vantaði vatnsaflsvirkjanir og beiðni um að snúa ofan af þeirri vitleysu að einhverjum átta virkjunarkostum hefði verið vippað úr nýtingu í bið. (Gripið fram í: Átta?) Þegar verið er að tala um að … (Gripið fram í.) — Eða sex. (Gripið fram í: Það skiptir ekki máli … átta, sex.) Nei, nei, það voru kannski vatnsaflsvirkjanir. (Gripið fram í.) Þeim var vippað yfir (Forseti hringir.) og það var skorað á okkur í umsögnum (Forseti hringir.) að fara í þetta verkefni sem við og gerðum.